Hafnarbraut 12, 200 Kópavogur
85.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
88 m2
85.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2021
Brunabótamat
52.350.000
Fasteignamat
71.400.000

Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Frábæra 3ja herbergja, 88,2m2 íbúð á 4.hæð í lyftuhúsi, ásamt bílastæði í bílastæðahúsi, við Hafnarbraut 12G, 200 Kópavogi.

Nánari lýsing: Forstofa er rúmgóð með fataskáp og flísalagt gólf. Eldhús er með fallegri ljósri innréttingu, eyju með helluborði, góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp ásamt góðum tækjum, gólf er flísalagt. Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á stórar suð-vestur svalir og góðu útsýni. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart, gluggar á tveimur hliðum, með stórum fataskáp, parket á gólfi. Ath. Vantar myndir af hjónaherbergi. Barnaherbergi er rúmgott og bjart með glugga á tveimur hliðum, parket á gólfi. Baðherbergi er rúmgott með sturtu og upphengdu salerni, góðu skápaplássi, ljósri innréttingu ásamt innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, gólf er flísalagt.

Sérgeymsla, 6,4m2, er á jarðhæð, fyrir framan bílastæði íbúðarinnar.

Bílastæði er í bílastæðahúsi á jarðhæð.

Staðsetning er frábær á vinsælum stað á Kársnesinu í Kópavogi.

Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 777 56 56 / 517 26 00.  [email protected] og á heimasíðu okkar www.fastko.is

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu  kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.700  af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk.  sbr. Kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.