Eignin er seld.......
Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Einstaklega fallegt og vel skipulagt 116,6m2 enda raðhús á einni hæð á góðum stað við Víðidal 72, 260 Njarðvík.Nánari lýsing: Forstofa með parketflísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er bjart með fallega dökk litaða innréttingu með góðu skápaplássi, Siemens tækjum, helluborði, háfi og vönduðum ofni með örbylgju ofni, parketflísum á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í einu opnu og björtu rými með parketflísum á gólfum.
Svalahurð er úr stofu út á stóra
timburverönd.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi og parketflísum á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö og eru bæði björt og rúmgóð með fataskápum, parketflísar á gólfum.
Baðherbergið er rúmgott með fallega innréttingu og góðu skápaplássi, flísalagða sturtu og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólf og veggir eru flísalagðir. Rúmgóð
geymsla er inn af gangi, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Timburveröndin er með allri bakhlið hússins, með timbur og gler skjólvegg.
Geymsluskúr, á hjólum, er á veröndinni fyrir grill og garðhúsgögn.
Frábært útsýni er til norðurs frá veröndinni.
Innkeyrslan er hellulögð með hitalögn í gönguleið.
Húsið er á mjög góðum og vinsælum stað þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla ásamt íþróttarhús og sundlaug sem eru í byggingu.Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur, í síma 777 56 56, og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fastko.isKostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.