Eignin er seld......
Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Fallega 106.3m2, 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð, þar af er bílskúr 23,5m2, á góðum og vinsælum stað, við Víðihvamm 24, 200 Kópavogur.Nánari lýsing: Forstofa er með fatahengi og flísum á gólfi.
Eldhús er bjart með ljósri fallegri innréttingu, ágætum tækjum.
Borðstofa er í björtu og opnu rými stofu.
Parket er á gólfum.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi. Útgengt er út á
timburverönd út úr svefnherbergi og snýr hún í suð-vestur átt.
Barnaherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, góðum skápum og baðkari með sturtuaðstöðu.
Gólf og veggir eru flísalagðir.
Sér geymsla er á jarðhæð ásamt
sameiginlegu þvottahúsi.Húsið er í góðu ástandi og stendur á vinsælum og góðum stað í Víðihvammi í suðurhlíðum Kópavogs. Sameignin er snyrtileg.
Bílskúr er 23,5m2 og bílastæði eru malbikuð.Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur, í síma 777 56 56, [email protected] , og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fastko.isKostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.