Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynnir: Fallega 3ja herbergja, 97.9m2, íbúð að Breiðbraut 670a, 262 Reykjanesbær.
Nánari lýsing: Forstofa er með fataskáp og parket á gólfi. Eldhús er rúmgott með dökkri innréttingu og góðum tækjum. Stofa er rúmgóð og björt og þaðan er gengið út á suður-austur svalir. Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði rúmgóð og er stærra herbergið með fataskápum. Vandað og fallegt parket á gólfum stofu, eldhúss og herbergjum íbúðarinnar. Baðherbergi er með dökkri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, góðu skápaplássi, flísalagt gólf og veggi að hluta. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Sér geymsla er á 1.hæð ásamt sameiginlegu hjóla- og vagnageymslu.
Húsið hefur allt verið tekið í gegn og er í góðu ástandi. Íbúðin hefur öll verið endurnýjuð að innan og er mjög góð.
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 777 56 56 / 517 26 00.
[email protected] og á heimasíðu okkar www.fastko.is
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.