Fasteignasala Kópavogs kynnir eignina Sæból 35, íbúð 0106, 350 Grundarfjörður, nánar tiltekið nýuppgerð íbúð ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Íbúðin er skráð hjá FMR: birt stærð er 70,7 m2. Íbúðin er nýuppgerð. Íbúðin er à neðri hæð, með sér inngangi.
Inngangur inn í lítið hol. Parket á gólfum í stofu og herbergjum. Tvö svefnherbergi parketlögð og með fataskáp. Björt og rúmgóð stofa sem er flísalögð að hluta. Lítill eldhúskrókur með nýrri innréttingu. Innbyggð uppþvottavél í innréttingu. Ísskápur fylgir. Lítið baðherbergi með sturtu, innréttingu og handklæðaofni. Rennd hurð og flísar á gólfi.
Íbúðin er nýuppgerð, og eru allar innréttingar og gólfefni ný. Allar lagnir eru nýjar, og allir ofnar eru nýir. Ath að meðfylgjandi myndir eru úr samskonar íbúð í sama húsi.
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 777 56 56 / 517 26 00.
[email protected] og á heimasíðu okkar www.fastko.is
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 45.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.