Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Glæsilega 4ra herbergja, 114m2, íbúð á 2. hæð við Stíflusel 5, 109 Reykjavík.Forstofa er í opnu rými með flísalagt gólf og fataskáp.
Eldhús er bjart og með ljósri innréttingu, borðkrók, ágætum tækjum og flísalögð gólf.
Stofa og
hol eru í einu rými.
Hol er með fataskáp og gólf er flísalagt.
Stofa er björt og rúmgóð með eikarparket á gólfi. Út gengt er út á
vestursvalir úr stofu.
Svefnherbergin eru þrjú með eikar á gólfi og eru tvö herbergjanna með fataskáp.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, góðri innréttingu og skápaplássi, gólf og veggir eru flísalagt. Rúmgóð
sér geymsla er á jarðhæð ástamt
hjóla- og vagnageymslu. Sameiginlegt
þvottahús og
þurkherbergi er á jarðhæð.
Íbúðin er í góðu ástandi og hefur ávallt verið haldið vel við.
Húsið er í góðu ástandi og hefur verið í góðu viðhaldi, búið er að klæða gafl hússins. Búið er að skipta um alla
glugga og gler, nýir gluggar eru úr PVC efni.
Bílastæði eru malbikuð.
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 777 56 56 / 517 26 00. gunnlaugur@fastko.is og á heimasíðu okkar www.fastko.isKostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.